Færsluflokkur: Íþróttir
5.3.2011 | 19:34
Fyrstu úrslitaleikirnir búnir (Uppfært kl. 11:40)
Íþróttir | Breytt 6.3.2011 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2011 | 15:56
Nýjustu úrslit (uppfært kl. 18:10)
Fyrstu leikjum í krossspili var að ljúka og ráðast úrslit í A- C- og D-liðum í 5.flokki núna fyrir kvöldmat en B-lið spila í fyrsta leik í fyrramálið. Úrslit verða uppfærð hér á síðunni eftir hvern leik... Spennan eykst því með hverri mínútu!
Með því að smella á meðfylgjandi skrár má sjá nýjustu úrslit og lokastöðu í riðlunum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2011 | 10:57
Allt farið á fullt á laugardegi
Þá eru leikir farnir á fullt á laugardegi og þegar þetta er skrifað er fyrstu leikjum morgunsins þegar lokið. Liðin úr 6.flokki hafa nú raðað sér niður í deildir eftir styrkleika og eru leikir þeirra nú lengri en í gær og að öllum líkindum jafnari og skemmtilegri.
Öll liðin fara í dag í hinn víðfræga Brynjuís og verður vonandi og væntanlega engin svikinn af honum. Annars er það að segja að mótið gengur mjög vel, stelpurnar eru til fyrirmyndar og standa sig mjög vel innan vallar og utan.
Að lokum er svo vert að benda fólki á að skoða myndasíðurnar frá mótinu hér að neðan en þar eru þegar farnar að birtast myndir frá mótinu og er ætlunin að það birtist myndir frá öllum liðum.
kveðja, mótsstjórn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2011 | 20:37
Leikjaniðurröðun og úrslit (uppfært kl.13:50)
Hægt er að sjá riðlana, úrslit og leikjaniðurröðun dagsins hérna í skjölunum að neða. Riðlarnir hjá 5flokk A-liða voru að klárast og búið að raða niður í krossspil sem verður kl. 17:15 í dag.
Íþróttir | Breytt 5.3.2011 kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2011 | 18:05
Nýjustu úrslit
Eins og alltaf þá munum við vera dugleg að uppfæra nýjustu úrslit hér á Goðamótssíðunni alla helgina. Nýjustu úrslit og stöður í riðlum getið þið nálgast með því að smella á skránna hér að neðan.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2011 | 14:08
Handbók Goðamótsins
Handbók Goðamótsins er komin á netið í pdf-formi - smellið hér til að opna. Í handbókinni eru mikilvægar upplýsingar fyrir keppendur, fararstjóra og þjálfara um ýmislegt er varðar mótið og dvölina á Akureyri, ásamt auðvitað leikjaplaninu og riðlaskiptingunni.
Leiðrétting: Í handbókinni stendur að morgunmatur á sunnudag hefjist kl. 7.15 en hið rétta er að hann hefst kl. 6.45, eða klukkustund og korteri fyrir fyrsta leik.
VEKJUM ATHYGLI Á ÖRLÍTILLI BREYTINGU Á LEIKJAPLANI SEM VARÐ Á FIMMTUDAGSKVÖLD. SJÁ HÉR Í FRÉTT AÐ NEÐAN!
Goða skemmtun!
Íþróttir | Breytt 4.3.2011 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.3.2011 | 12:15
Lokaútgáfa af leikjaplani og riðlaskiptingu (uppfært með breytingum í C-liðum, B-riðli kl.20:40 fimmtudag)
Góðan dag,
Með þessari færslu er ný útgáfa (töluvert breytt) af leikjaplani og leikjaniðurröðun frá því sem áður var auglýst hér á síðunni. Við biðjum alla að taka eldri drög úr umferð til að forðast misskilning.
Hafi lið áhuga á auka afþreyingu á meðan á móti stendur er nú komin skemmtileg leið til þess! Goðamótsnefndin hefur ákveðið að niðurgreiða miða fyrir keppendur mótsins í Paradísarland á Glerártorgi. Paradísarland er eins konar innanhússskemmtigarður þar sem margt skemmtilegt er í boði fyrir börn á þeim aldri sem keppa á mótinu núna. Miðinn kostar 500 krónur á mann og fyrir það fæst klukkustundar aðgangur. Þessa miða verður hægt að nálgast í mótsstjórn.
Gangi þessi tilraun vel er möguleiki að á næsta ári verði þessi möguleiki einfaldlega hafður inni í mótsgjaldinu (því miður gafst þess ekki kostur í ár því þetta kom upp með stuttum fyrirvara). Við hvetjum liðin til að hafa með sér örfáar aukakrónur og nýta sér þessa afþreyingu, það er enginn svikinn af því að heimsækja Paradísarland. Paradísarland er opið á föstudag til kl. 18.30, og laugardag og sunnudag kl. 12-17.30.
Annars hlökkum við til að sjá ykkur öll eldspræk á föstudag!
kveðja, mótsstjórn
Íþróttir | Breytt 3.3.2011 kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2011 | 19:30
Goðamót TV - ný myndbönd
Nú er að mestu lokið myndbandavinnslu eftir fyrstu tvö Goðamótin (4kvk og 5kk) og næstum þrjátíu myndbönd komin inn á Youtube. Við förum kannski betur yfir allt myndefnið fljótlega og búum til myndbönd á gamansömum nótum til að bæta í safnið þannig að óhætt er að kíkja reglulega á rás Þórsara á Youtube.com. Ætlunin er að halda áfram á sömu braut á komandi mótum og þróa verkefnið jafnóðum og við lærum af reynslunni.
Tengla inn á myndbandalista fyrir hvert mót má finna á Goðamót TV-síðunni.
Ef þú ert að leita að upplýsingum um næsta mót kíktu þá á næstu frétt á undan þessari - þar er tengill á riðlaskiptingu og leikjadagskrá fyrir 5kvk og 6kvk.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2011 | 21:09
Leikjadagskráin klár
Enn og aftur styttist í Goðamót og næstum allt að verða klárt fyrir mótið í 5. og 6. flokki kvenna sem verður 4.-6. mars.
Búið er að leggja lokahönd á riðlaskiptingu og uppsetningu leikjadagskrárinnar ogmá nálgast þær upplýsingar í pdf skjölum sem fylgja þessari frétt. Fyrstu leikir hefjast kl.16:00 á föstudag og mótinu ætti að vera lokið um kl.15:00 á sunnudag.
Eins og venjulega verður gist í Glerárskóla og vill mótsstjórn leggja áherslu á að móttaka liða hefst kl. 15.00 á föstudag í skólanum. Við biðjum liðin um að virða þá tímasetningu þannig að starfsfólk skólans fái tóm til að ganga frá að lokinni vinnuviku þar. Ef lið eru komin fyrr til Akureyrar eru þau velkomin í Hamar, félagsheimili Þórs, þar sem hægt er að setjast niður og slaka á þar til hleypt verður inn í skólann.
Handbók mótsins með margs konar gagnlegum upplýsingum, auk leikjadagskrárinnar, verður tilbúin síðar í vikunni og verður m.a. sett hér inn á mótssíðuna sem pdf-skjal. Þannig ættu allir, bæði þjálfarar, fararstjórar, keppendur og foreldrar að geta kynnt sér dagskrána, reglur og fleira.
Íþróttir | Breytt 28.2.2011 kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2011 | 17:03
Goðamóti Þórs fyrir 5.flokk karla 2011 er lokið
Þá er Goðamóti Þórs fyrir 5.flokk karla árið 2011 lokið. Nánar fréttir af mótinu verða settar hér á síðuna í kvöld og á næstu dögum, þar með talin fjöldi ljósmynda og myndbanda frá mótinu.
Óhætt er að segja að Þórsarar hafi sýnt litla gestrisni innanvallar því þeir sigruðu Í A-, B-,C- og F-liðum. Fjölnir hafði sigur í D-liðum og Breiðablik í E-liðum.
Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í mótinu kærlega fyrir helgina!
kv. mótsstjórn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- September 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Heimasíður tengdar Goðamótum
- Goðamót TV á Youtube Samansafn myndbanda á vegum Goðamótanna
- Eldri vefur Goðamóta
- Íþróttafélagið Þór
- Landsbankamót Þórs
- Myndir frá Goðamótum 2005 og 2006