Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Nýjustu úrslit - krosspil og leikir um sæti í gangi

Eins og alltaf þá munum við vera dugleg að uppfæra nýjustu úrslit hér á Goðamótssíðunni alla helgina. Nýjustu úrslit getið þið nálgast með því að smella á skránna hér að neðan.

(Uppfært kl. 13.40 (sunnudag)).


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Velkomin til Akureyrar!

Á sér síðu hér á blogginu - Goðamót TV - setjum við jafnóðum inn myndbönd frá mótinu eftir því sem við höfum tíma til að klippa og setja inn. 

Hér er fyrst stutt kveðja frá strákunum í 5. flokki Þórs til allra gesta á mótinu:


Laust pláss í 6.flokki karla 25.-27. mars nk.

Eitt lið hefur dregið sig úr keppni hjá 6.flokki karla helgina 25. - 27. mars nk. Það er því eins og staðan er núna laust á mótið, 55 lið eru skráð til leiks en við getum tekið á móti í allra mesta lagi 60 liðum. Hafið því hraðar hendur 6.flokks þjálfarar ef þið hafið áhuga á að vera með í mótinu, nú eða bæta við liðum hjá þeim sem þegar hafa skráð sig.

kv. mótsstjóri


Goðamót TV

Á Goðamóti 4. flokks kvenna á dögunum mundaði einn úr mótsnefndinni litla myndbandstökuvél. Reyndar skal viðurkennt að tökumaður náði ekki mörgum mörkum, yfirleitt var skorað á öðrum völlum en hann var að mynda hverju sinni.

Frá mótslokum hafa farið nokkrir hálftímar í að klippa saman efni og gera það birtingarhæft. Nú eru komin ein ellefu myndbönd frá mótinu inn á Youtube og eru tengingar á myndböndin á sér síðu hér á Goðamótsvefnum. Myndböndin má einnig finna á rás Þórs, thorsports, á Youtube.

Ætlunin er að halda áfram á sömu braut og þróa vinnsluna áfram.  Goða skemmtun!


Handbók Goðamótsins

Fararstjórar og þjálfarar fá Handbók Goðamóta útprentaða þegar liðin mæta á staðinn og gera upp mótsgjaldið (tvær á hvert lið). Í handbókinni eru hagnýtar upplýsingar um mótið, svo sem dagskrá og tímasetningar, gagnleg símanúmer, umgengnisreglur, keppnisreglur, riðlaskiptingu og leikjadagskrá.

Foreldrar heima og á staðnum, fararstjórar, þjálfarar og þátttakendur geta einnig opnað Handbókina hér á vefnum okkar (pdf-skjal) og prentað út.

Handbók Goðamóta Þór 2011 - 5. flokkur karla

Sjá einnig leikjadagskrána og riðlaskiptingu í sér skjali í frétt hér neðar. 


Goðamót - lokaniðurröðun á leikjaplani og riðlum

Góðan dag!

Hér kemur lokaútgáfa leikjaplans og riðlaskiptingar á Goðamóti 5.flokks karla 2011. Engar breytingar hafa verið gerðar á riðlaskiptingu en örlitlar breytingar á leikjaniðurröðun E og F-liða. 

Leikjaplaninu verður ekki breytt héðan í frá nema að eitthvað mikið komi upp á.

Þið smellið á skrárnar sem fylgja þessari færslu til að skoða leikjaplan og riðlaskiptingu.

kv. Jónsi mótsstjóri


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Riðlaskipting og leikjaplan á Goðamóti 5.flokks karla (uppfært)

Með því að smella á tenglanna hér fyrir neðan má nálgast leikjaplan og riðlaskiptingu á Goðamóti 5.flokks karla.

Uppfært sunnudag kl.16:00. Engar breytingar nema að Mývetningur kemur inn í E-liða keppni í stað Fjölnis. Bið Mývetninga innilega afsökunar á þessum mistökum!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

4 kvk - myndband - ísferð

Ísferð í Brynju með rútum frá SBA-Norðurleið og eðalbílstjórum úr innstu röðum Þórsara eru ómissandi og órjúfanlegur hluti af því að taka þátt í Goðamóti. Tökumaður skrapp með í eina ferð á mótinu hjá 4. flokki kvenna...

 


Riðlaskipting klár og leikjaplan tilbúið - kemur á vefinn í dag

Góðan dag,

Í dag munum við setja hér inn leikjaplan og riðlaskiptingu í Goðamóti 5.flokks karla sem fram fer um næstu helgi. Eflaust eru margir spenntir að sjá hvernig þetta kemur allt saman til með að líta út og munum við reyna að flýta okkur sem kostur er :)

kveðja, mótsstjórn


Myndbrot frá Goðamóti 4kvk

Einn úr mótsstjórninni gerði það sér og öðrum til gamans að veifa myndbandstökuvél á Goðamóti 4. flokks kvenna 4.-6. febrúar, reyndar mest á laugardeginum og sunnudeginum. Stundum gekk erfiðlega að hitta á mörkin en til eru eitthvað á þriðja hundrað myndbútar af undirbúningi, úr leikjum og af ýmsu í kringum mótið. Það tekur nokkurn tíma að vinna úr þessu öllu og klippa saman en hér er fyrsta brotið - smá sýnishorn af undirbúningnum fyrir mótið og umgjörðinni. Næstu myndbönd innihalda að sjálfsögðu meiri fótbolta en þetta. Hér er bara byrjunin...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Stjórn Goðamóta

Goðamót Þórs í fótbolta
Goðamót Þórs í fótbolta

Goðamótin í knattspyrnu veturinn 2012

4.fl.kvenna 3. - 5. feb

5.fl.karla 17. - 19. feb

5.fl og 6.fl.kvenna 2. - 4. mars

6.fl.karla 23. - 25. mars


Upplýsingar!

Netfang:  godamot@tpostur.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband