Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

5. flokkur 2010 - Leikjum dagsins lokið

Úrslit!
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ný úrslit

AFjölnirÞór1 3
AFylkirBreiðablik2 4
AFjarðabyggðVölsungur2 4
AÞrótturValur   
BBreiðablik 1KS5 2
BFylkirFjölnir0 3
BValurBreiðablik 20 3
BHötturTindastóll2 4
CLeiknirBreiðablik3 5
CVölsungurFylkir2 2
CFjarðabyggðÞór0 3
CMagniÞróttur2 5

Fyrstu leikjum er lokið

A

FjölnirÞór1 3
AFylkirBreiðablik2 4
AFjarðabyggðVölsungur2 4

 

Föstudagur 009Þrír leikir hófust sem sagt klukkan þrjú eins og til stóð og aðeins einum þurfti að fresta. Allt er komið á fullt á þessu öðru Goðamóti ársins.

Nú snjóar töluvert á Akureyri og finnst mörgum komið nóg! En það væsir ekki um strákana frekar en fyrri daginn, þeir búa í Glerárskóla, steinsnar frá Boganum þar sem leikirnir fram og hlaupa á milli húsa.

Myndin er tekin síðdegis þegar Þróttarar úr Reykjavík komu í Glerárskóla.


Ísfirðingar létu ófærð ekki stoppa sig!

Föstudagur 018Nokkrum liðum hefur seinkað eitthvað á leiðinni norður til okkar í dag, aðallega vegna þess að þjóðvegurinn um Kjalarnes var lokaður í morgun vegna ófærðar. Margir strákanna eru þó komnir og flest liðin komin langleiðina til Akureyrar. Örlítil seinkun gæti þó orðið á því að mótið byrji en flauta átti til fyrstu leikja núna klukkan þrjú.

Gaman er að segja frá því að Ísfirðingar létu ófærð og vont veður ekki stoppa sig. Lið þeirra lagði af stað að heiman síðdegis í gær en eftir nokkra klukkutíma ferð var óumflýjanlegt að snúa við vegna veðurs og hópurinn gisti á Hólmavík í nótt. Ísfirðingar fóru svo af stað á ný snemma í morgun eru nú mættir galvaskir í Glerárskólann og er að gera sig klára fyrir keppni. Ástæða er til þess að bjóða þessar vestfirsku hetjur sérstaklega velkomnar!

Á myndinni eru nokkrir Ísfirðingarnir í Glerárskóla um miðjan dag þar sem þjálfarinn þeirra, Jón Hálfdán Pétursson, hélt smá fund.


Goðamót Þórs 5. flokkur karla 2010 - Smá breyting

Leikir Breiðabliks og Leiknis í A liðum víxlast á öllum leiktímum!

Leikjaplan, riðlar og dagskrá!

Goðamótin eru líka á Facebook, þar geta allir skrifað eða sett inn myndir!

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Næsta Goðamót verður helgina 26.-28. febrúar

Helgina 26.-28. febrúar verður Goðamót Þórs fyrir 5.fl. karla haldið.

Þakkir fyrir helgina

Kæru foreldrar!

Goðamótsnefndin og unglingaráð knattspyrnudeildar vilja þakka ykkur, foreldrum stúlkna í 4. flokki, fyrir frábært samstarf um helgina.

Allt gekk upp án nokkurra vandkvæða og án ykkar framlags gengi þetta ekki upp hjá okkur.

Með kærum kveðjum og þakklæti frá okkur öllum,

Goðamótsnefndin og unglingaráð knattspyrnudeildar.


HK vann A-liðakeppnina og Breiðablik fékk þrenn gullverðlaun

Meistarar HK

HK varð Goðamótsmeistari A-liða eftir 3:1 sigur á Breiðabliki í úrslitaleiknum. HK komst í 2:0, Blikarnir minnkuðu muninn en þeir rauðu og hvítu úr Kópavoginum gerðu síðasta markið. Liðin voru saman í riðli á mótinu og úrslitin urðu þau sömu þegar þau mættust í gær.

Breiðablik fagnaði hins vegar þrennum gullverðlaunum í dag; sigraði Þór 3:1 í úrslitaleik B-liðanna, lagði KA 2:0 í úrslitaleik C-liðakeppninnar og í úrslitaleik D-liða gerðu Breiðablik og Fjölnir 1:1 eftir framlengingu. Þá var hlutkesti varpað og Blikarnir höfðu heppnina með sér.

Lið Samherja úr Eyjafjarðarsveit hlaut Goðabikarinn að þessu sinni, en mótsstjórn veitir hann jafnan liði sem þykir hafa verið til fyrirmyndar að öllu leyti á mótinu, bæði innan sem utan vallar.

Á myndinni eru Goðamótsmeistarar HK.

Myndir úr úrslitaleikjunum í dag, og af öllum liðunum sem hlutu verðlaun, eru komnar í myndaalbúmið hægra megin á síðunni.

Smellið á skrána hér að neðan til að sjá öll úrslit mótsins.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Spennan magnast

A lið HK Breiðablik013 

Leikirnir um gullverðlaun á Goðamótinu hefjast allir kl. 12.40 og svo skemmtilega vill til að Breiðablik úr Kópavogi er í baráttunni á öllum vígstöðvum.

Úrslitaleikirnir eru þessir:

A-lið HK - Breiðablik

A-lið Kópavogsfélaganna voru saman í riðli og í viðureign gærdagsins hafði HK betur, 3:1, í hörkuleik.

B-lið Þór - Breiðablik

C-lið Breiðablik - KA

D-lið Breiðablik - Fjölnir

Myndin er úr leik A-liða HK og Breiðabliks í riðlakeppninni í gær.


Völsungar fá tvenn bronsverðlaun

A lið Fjölnir Völsungur009 

Völsungar frá Húsavík urðu í 3. sæti bæði í keppni A- og C-liða á Goðamótinu. Leikjunum um bronsverðlaun er nýlokið og urðu sem hér segir: 

D-lið Fjarðabyggð vann HK 1:0

C-lið Völsungur vann Hauka 2:1

B-lið Skallagrímur vann Fjölni 4:1

A-lið Völsungur vann Þór 3:2

Myndin er úr leik A-liðs Völsungs við Fjölni í gær.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Stjórn Goðamóta

Goðamót Þórs í fótbolta
Goðamót Þórs í fótbolta

Goðamótin í knattspyrnu veturinn 2012

4.fl.kvenna 3. - 5. feb

5.fl.karla 17. - 19. feb

5.fl og 6.fl.kvenna 2. - 4. mars

6.fl.karla 23. - 25. mars


Upplýsingar!

Netfang:  godamot@tpostur.is

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband