Leita í fréttum mbl.is

Strákarnir hefja leik í dag

Annað Goðamót ársins hefst í Boganum í dag og um þessa helgi eru það strákar í 5. flokki sem leika. Stemmningin var frábær um síðustu helgi þegar stelpur í 4. og 5. flokki hvaðanæva af landinu öttu kappi og miðað við reynslu síðustu ára verður ekki síður skemmtilegt núna um helgina. Strákarnir hafa lengi beðið spenntir eftir að koma á Goðamótið og draumurinn er nú loks að verða að veruleika. Fyrstu leikirnir hefjast kl. 15.00.

Ekki er vitað annað en stóru strákarnir á myndinni verði á ferð með flautuna í Boganum eins og um síðustu helgi. Lengst til hægri er Páll Magnússon, dómari og stjórnarmaður hjá Þór til áratuga, í miðjunni Þóroddur Hjaltalín Þórsari og einn af A-dómurum landsins og lengst til vinstri Jan Erik Jessen, bráðefnilegur dómari úr röðum Þórsara. Jan Erik varð fyrir þeirri óvæntu reynslu um síðustu helgi að þurfa að fara meiddur af velli, blóðugur og aumur í andliti, eftir að ein stelpan þrumaði boltanum framan í hann. Þetta var í fyrri hálfleik, Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar hljóp í skarðið á meðan gert var að meiðslum Janna, sem kom svo galvaskur aftur inná í seinni hálfleik.

Vonandi gengur dómurum, leikmönnum, þjálfurum, liðsstjórum, forráðamönnum, foreldrum og öðrum áhangendum allt í haginn um helgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með Goðamótið 2008 Ég hef verið á Goðamóti  og það var frábær skemmtun fyrir okkur fjölskylduna   alveg meiriháttar upplifun og skemmtun Ég veit að þið  norðanmenn verðið sko fljótir að  setja upplýsingar um stöðu leikja, myndir og annað þessháttar inná þessa fínu síðu   svo við spenntu foreldrar við tölvuna getum verið með ykkur í anda og sannleika   þegar úrslitin ganga yfir og spennan nær hámarki! Go go go all the good and healthy football in world   

Svanfríður Ósk (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Stjórn Goðamóta

Goðamót Þórs í fótbolta
Goðamót Þórs í fótbolta

Goðamótin í knattspyrnu veturinn 2012

4.fl.kvenna 3. - 5. feb

5.fl.karla 17. - 19. feb

5.fl og 6.fl.kvenna 2. - 4. mars

6.fl.karla 23. - 25. mars


Upplýsingar!

Netfang:  godamot@tpostur.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband