Færsluflokkur: Íþróttir
1.3.2009 | 11:48
Frábært veður
Veðrið hefur leikið við Akureyringa og fjölmarga gesti þeirra um helgina. Nú er eins stigs frost hér í höfuðstað Norðurlands, sól og logn. Veðrið var reyndar enn betra í gær og á það þó varla að vera hægt!
Aðstæður eru frábærar í Hlíðarfjalli þar sem hefur verið krökkt af fólki alla helgina - margir foreldrar sem eru hér nyrðra með strákunum sínum á Goðamótinu eru með skíðin í farteksinu og dvela í fjallinu góða stund dag hvern.
Myndin er tekin af svölunum á Hamri, félagsheimili Þórs - þarna er áhorfendastúkan glæsilega sem verið er að byggja og verður tilbúin áður en Landsmót Ungmennafélags Íslands fer fram á svæðinu í sumar.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 11:32
Breiðablik 3 E-liðameistari
Breiðablik 3 vann keppni E-liða, sigraði Breiðablik 2 í úrslitaleiknum, 4:1.
Þróttur 2 varð í þriðja sæti, vann Þrótt 1 úrslitaleiknum 1:0.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 11:03
Blikar gegn Blikum og Blikar gegn Blikum!
Óhætt er að segja að Breiðablik úr Kópavogi hafi stolið senunni á Goðamótinu að þessu sinni. Blikarnir eru þegar búnir að vinna keppni D-liðanna, A-liðið leikur úrslitaleikinn á eftir gegn Þrótti og í keppni B, C og E-liða mæta tvö Breiðablikslið í úrslitunum í öllum tilfellum.
Úrslitaleikirnir eru þessir:
A-lið Þróttur - Breiðablik kl. 14.00
B-lið Breiðablik 2 - Breiðablik 1 kl. 13.20
C-lið Breiðablik 2 - Breiðablik 1 kl. 12.00
D-lið Breiðablik 1 - Grótta 3:0
E-lið Breiðablik 3 - Breiðablik 2 Leikurinn stendur yfir
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 10:20
Myndir og fréttir!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2009 | 00:50
Gaman í Boganum
Fyrsti keppnisdagur Goðamótsins fór sérlega vel fram. Mótið um helgina - þar sem eigast við strákar í 5. flokki alls staðar að af landinu - er það stærsta í sögu Goðamótaraðarinnar. Hér eru 506 keppendur auk allra þjálfaranna, fararstjóranna og foreldranna sem fylgja með.
Flestir eru frá Breiðabliki í Kópavogi; hvorki fleiri né færri en 94 leikmenn Breiðabliks eru með á mótinu um helgina en alls eru strákarnir frá 14 félögum.
Keppni hófst í morgun klukkan átta og síðustu leikjunum í kvöld lauk kl. 22.40 og boltinn fer að rúlla strax í fyrramálið kl. átta. Síðustu leikjum annað kvöld (laugardagskvöld) lýkur kl. 20.30 og þá hefst diskótek í íþróttahúsi Glerárskóla. Á sunnudagsmorgun verður aftur flautað til leiks klukkan átta og úrslitaleikjunum lýkur ekki fyrr en kl. 14.30.
Svo virðist sem úrslitakerfið sé eitthvað að stríða okkur. Úrslit allra leikja hafa verið skráð samviskusamlega inn í kerfið í dag en eru að mestu leyti ósýnileg! Við reynum að kippa því í liðinn strax eldsnemma í fyrramálið.
Myndir frá fyrsta keppnisdegi eru komnar í myndaalbúmið hægra megin á síðunni og svo fleiri myndir á morgun.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2009 | 14:16
5. flokkur karla 2009 - Úrslit!
Það eru ljós úrslit í A, B, C, D og E liðum.
Upplýsingar um markaskorara eru komnar inn.
Íþróttir | Breytt 26.2.2010 kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2009 | 21:28
Goðamót 5. flokks 2009 - Nýtt leikjaplan!
Hér fyrir neðan er nýtt leikjaplan á pdf og xls formi.
Dagskráin er klár hér til hliðar
Íþróttir | Breytt 24.2.2009 kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2009 | 14:23
Myndir af sigurliðunum
Myndir af sigurliðunum á Goðamóti helgarinnar má sjá í myndaalbúminu hægra megin á síðunni. Þetta eru Þórsstelpurnar sem fengu gullverðlaunin í keppni A-liða.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2009 | 10:57
Úrslit í Goðamóti 4. flokks kvenna 2009 liggja fyrir!
Í úrslitakeppni A liða sigraði Þór, HK varð í öðru sæti og KS/Leiftur í þriðja.
Í B liðum sigraði Þór, Fjarðabyggð í öðru sæti og í þriðja sæti varð HK.
Í keppni C liða sigraði Magni, HK í öðru sæti og Fjarðabyggð í þriðja.
Það er einnig spila til úrslita meða neðri liða og þar urðu sigurveigarar í A liðum FH, í B liðum Tindastóll og í C liðum Þór.
Allar upplýsingar má finna hér til hægri 4. flokkur kvenna úrslit leikja 2009
Mótinu verður slitið með verðlaunaafhendingu, grilluðum Goðapylsum og Coke um kl. 12.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2009 | 10:22
Lokaspretturinn hafinn
Síðasti keppnisdagur á Goðamótinu er hafinn. Blásið var til fyrstu leikja dagsins núna kl. 10.00 og þeir síðustu hefjast kl. 11.20. Úrslitin eiga því að liggja fyrir um hádegið. Myndin er úr leik Leiknis og Magna frá því í gær.
Í A liðum er hreinn úrslitaleikur í riðlinum milli HK og Þór, hjá B liðum standa Þórsara best að vígi en í C liðum ráðast úrslitin í leik HK og Magna.
Íþróttir | Breytt 2.3.2009 kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- September 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Heimasíður tengdar Goðamótum
- Goðamót TV á Youtube Samansafn myndbanda á vegum Goðamótanna
- Eldri vefur Goðamóta
- Íþróttafélagið Þór
- Landsbankamót Þórs
- Myndir frá Goðamótum 2005 og 2006