Færsluflokkur: Íþróttir
26.3.2010 | 20:10
Úrslit leikja Föstudag
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2010 | 18:44
Líf og fjör á Goðamóti
Það er svo sannarlega líf og fjör á 25. Goðamóti Þórs jafn innanvallar sem utan. Sumir eru að koma í fyrsta sinn en aðrir hafa komið hér áður.
Það var létt yfir strákunum úr KS frá Siglufirði þegar við tókum þá tali. Strákarnir sögðu fyrst að þeir væru komnir hingað til þess að vinna og ekkert annað. ,,Við ætlum sko heim með gullið. En ef ekki þá ætlum við að hafa gaman af þessu.
Kjalnesingar voru gómaðir þegar þeir voru nýkomnir úr æsispennandi leik gegn Breiðabliki þegar við náðum tali af þeim. Hluti þeirra hafði komið áður á Goðamót aðrir voru hér í fyrsta sinn. Þeirra markmið var fyrst og síðast að vera með og hafa gaman af þessu. Einhverjir sögðust aldrei hafa komið til Akureyrar áður og fannst afar spennandi að vera komnir hingað.
Samherjar úr Eyjafjarðarsveit voru að fara spila við Mývetninga og mikil tilhlökkun í hópnum hjá þeim. Þeir sögðust allir þekkja vel til Goðamótanna þótt þeir hafi ekki allir keppt á mótinu. Jú við ætlum sko að skemmta okkur og hafa gaman. En vitið þið hvaðan Mývetningar eru ,,Já já auðvitað vitum við það þeir eru frá . Já einhvers staðar stutt frá. Ætla allir að fara í ísferðina á morgun? Jáááááááá og þeir höfðu það alveg á hreinu hvað ísinn heitir ,,Brynjuísinn er sá besti í heimi
Mývetningar voru að gera sig klára fyrir leikinn gegn Samherjum og þegar þeir voru spurðir hvort þeir vissu hvaðan Samherjar kæmu stóð ekki á svörum hjá þeim ,,Eyjafjarðarsveit. Allir höfðu þeir komið áður á Goðamót og þeir sögðu að þeir ætluð sko að hafa gaman af þessu og að vinna væri ekki aðalatriðið, heldur að hafa gaman af þessu. Þegar þeir voru spurðir útí hvort þeir ætluðu að fara í ísferðina á morgun stóð ekki á svörum. Jájá auðvitað Brynjuísinn er æðislegur og við sleppum því sko ekki, sögðu þeir að lokum og héldu svo áfram að hita upp fyrir leikinn gegn Samherjum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2010 | 16:33
Úrslit leikja á föstudegi.
Nú eru að koma inn úrslit úr leikjum sem voru leiknir kl 20.20 á 25. Goðamóti Þórs.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2010 | 21:30
Heimsins besta kjötsúpa?
Matur hefur verið til sölu við vægu verði í Hamri meðan á Goðamótum vetrarins stendur og svo verður áfram um helgina, vegna góðra viðbragða fram að þessu.
Á föstudaginn hefja keppni strákar í 6. flokki og leika listir sínar í Boganum þar til á sunnudag. Þeir eru hvaðanæva af landinu sem fyrr.
Foreldrar og aðrir aðstandendur krakkanna hafa gripið tækifærið fegins hendi, að geta keypt sér að borða í Hamri en þar er boðið upp á hina rómuðu Þórskjötsúpu, sem upphaflega sló í gegn á Landsmóti Ungmennafélags Íslands síðastliðið sumar. Frjálsíþróttamenn fullyrtu þá sumir hverjir að það væri besta kjötsúpa í heimi! Auk þess er til sölu pasta og brauð. Þá er bakkelsi á boðstólum, t.d. vöfflur, kaffi og kakó bæði á laugardag og sunnudag.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2010 | 17:11
Goðamót 6. flokks karla 2010
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2010 | 10:58
Blikarnir unnu fern gullverðlaun
Leikjum er lokið og Breiðablik varð í fyrsta sæti á öllum vígstöðvum. Úrslitaleikirnir fóru sem hér segir:
A | Breiðablik | Valur | 3 | - | 0 |
B | Breiðablik | Fram | 2 | - | 1 |
C | Tindastóll | Breiðablik | 0 | - | 3 |
D | Breiðablik 1 | Fjarðabyggð | 2 | - | 0 |
Á myndinni eru Goðamótsmeistarar Breiðabliks í A-liðakeppninni.
Myndir úr úrslitaleikjunum og af öllum liðunum sem fengu viðurkenningu koma inn á síðuna seinna í dag. Fleiri myndir eru líka væntanlegur úr leikjum gærdagsins - úr leikjum allra liða.
Íþróttir | Breytt 16.3.2010 kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2010 | 10:44
Myndunum fjölgar
Fleiri myndir frá því í gær eru komnar inn í albúmið en þó ekki allar. Smávægilegir tæknilegir erfiðleikar gerðu okkur erfitt fyrir en nú er allt komið í lag og myndirnar streyma inn. Myndir frá því í dag fylgja svo í kjölfarið þegar þar að kemur.
Myndin er úr leik B-liða Þórs og KA í gær.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2010 | 10:39
Fallega hvítt
Það snjóaði dálítið á Akureyri í fyrrinótt og í gær er ákaflega fallegt um að litast. Hvítt er því liturinn í - sá hvíti bragðaðist líka vel í gær því stelpurnar flykktust með ísrútunni inn í Brynju þar sem Goðamótið bauð öllum upp á ís að vanda. Sumar fengu sér auðvitað bleikan eða brúnan og hann var ekki síðri en sá hvíti...
Á myndinni eru nokkrar galvaskar stelpur úr Tindastóli, þar sem þær biðu eftir því fyrir utan Hamar að ísrútan færi af stað.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2010 | 20:11
Nýjustu úrslit og leikir um sæti sunnudag. kl. 11:20
Íþróttir | Breytt 14.3.2010 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2010 | 18:25
Fyrstu myndirnar komnar í albúmið
Ljósmyndir frá Goðamótinu munu birtast í myndaalbúminu hægra megin á síðunni eftir því sem mótinu vindur fram eins og venja er orðin. Nokkrar myndir eru þegar komnar inn, úr 1. umferð mótsins í dag þegar A-liðin léku.
Á myndinni fagna leikmenn Breiðabliks marki í sigurleik gegn liði Grindavíkur fyrr í dag.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- September 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Heimasíður tengdar Goðamótum
- Goðamót TV á Youtube Samansafn myndbanda á vegum Goðamótanna
- Eldri vefur Goðamóta
- Íþróttafélagið Þór
- Landsbankamót Þórs
- Myndir frá Goðamótum 2005 og 2006