17.3.2008 | 10:10
Allir myndir komnar inn á síðuna
Jæja, þá eru allar myndir Goðamótsljósmyndarans frá helginni komnar inn í myndaalbúmin. Hann byrjaði rólega, aðeins eru 16 myndir frá föstudeginum en aftur á móti eru 430 myndir frá laugardeginum þar sem teknar voru myndir úr leikjum allra liða. Síðan eru 125 myndir frá gærdeginum; úr öllum úrslitaleikjunum og síðan af öllum liðunum sem fengu viðurkenningu.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.3.2008 | 15:20
Blikastrákar hrepptu A-liðagullið
Breiðablik sigraði KA í úrslitaleik A-liðanna núna áðan og Blikarnir fögnuðu þar með sigri á mótinu. Gullstrákarnir eru ásamt þjálfara sínum á myndinni hér að ofan.
KR sigraði í keppni B-liða, vann Leikni í úrslitaleik og hjá C-liðunum urðu Fylkismenn hlutskarpastir. Þeir sigruðu KR í úrslitaleiknum.
KA-menn unnu gullverðlaun í keppni D-liðanna eftir úrslitaleik við okkar menn í Þór - úrslitaleikurinn var jafn eftir framlengingu og því var hlutkesti varpað og KA-menn höfðu heppnina með sér.
Tindastóll frá Sauðárkróki sigraði svo í E-liðakeppninni, Sauðkrækingarnir lögðu Gróttumenn að velli í úrslitaleiknum.
Myndir úr öllum úrslitaleikjunum koma inn á vefinn seinna í dag - verða í sunnudagsmöppunni - og þá koma líka inn myndir af öllum liðunum sem hlutu verðlaun.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.3.2008 | 12:00
320 myndir
Búið er að setja 320 myndir inn í laugardagsmöppuna en heilmikið á samt eftir að koma. Myndað var í leik hjá hverju einasta liði. Nú fer að styttast í úrslitaleikina þannig að ljósmyndarinn þarf að gera sig kláran í það verkefni. Afgangurinn af laugardagsmyndunum verður því ekki sjáanlegur fyrr en seinna í dag - þær mjatlast inn um svipað leyti og myndirnar frá verðlaunaafhendingunni.
Á meðfylgjandi mynd er baráttan í algleymingi í leik D-liða Fjarðarbyggðar og Breiðabliks í gær.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 09:47
Nú er ljóst hverjir spila til úrslita!
A lið Breiðablik - KA
B lið KR - Leiknir
C lið Fylkir - KR
D lið KA - Þór 1
E lið Tindastóll - Grótta
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 00:54
Fleiri myndir
Nú eru komnar 206 ljósmyndir í laugardagsmöppuna. Það hefur gengið aðeins hægar en venjulega að hlaða myndunum inn - tæknin aðeins að stríða okkur, eins og stundum er sagt - og afgangurinn af laugardagsmyndunum verður settur inn í albúmið í fyrramálið.
Á morgun verður ljósmyndarinn svo auðvitað áfram með myndavélina á lofti, myndar úrslitaleikina og svo verða teknir myndir af öllum liðunum sem vinna til verðlauna og jafnvel fleirum.
Þessi galvaski strákur á myndinni er leikmaður Fylkis. Hann er þarna á fleygiferð í leik C-liðsins gegn Gróttu.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 22:47
Myndaveisla
Nú eru komnar rúmlega 100 myndir inn í laugardagsmöppuna en mun fleiri eru á leiðinni og verða komnar þangað þú, lesandi góður, vaknar í fyrramálið!
Hér eru fáein sýnishorn frá þessum frábæra laugardegi á Goðamóti 6. flokks.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 20:44
Hverjir komust áfram?
Það verða annars vegar Breiðablik og Fylkir og hins vegar Þór 1 og KA sem mætast í undanúrslitum A-liðakeppni Goðamótsins í fyrramálið. Báðir leikirnir hefjast kl. 9.00.
Hjá B-liðunum eru það KR - Magni og Leiknir - Breiðablik sem mætast í undanúrslitum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 19:13
Goðamótssamningurinn endurnýjaður til þriggja ára
Í gærkvöldi skrifuðu Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, og Sigurjón Magnússon, fyrir hönd Íþróttafélagsins Þórs, undir samning um áframhaldandi samstarf Norðlenska og Þórs um Goðamótin í knattspyrnu. Samningurinn er til næstu þriggja ára og tekur gildi frá og með næsta vetri.
Nú stendur yfir í Boganum á Akureyri Goðamót Þórs í 6. aldursflokki drengja og er þetta þriðja og síðasta Goðamót vetrarins. Núgildandi samningur milli Norðlenska og Þórs um Goðamótin rennur út að þessu móti loknu og samningurinn er því framhald á núverandi samstarfi, sem hefur staðið undanfarin sex ár, en frá árinu 2003 hefur Íþróttafélagið Þór haldið Goðamótin. Um er að ræða mót í 5. aldursflokki drengja, 6. aldursflokki drengja og 4. og 5. aldursflokki kvenna.
Á hverju Goðamóti taka þátt á bilinu 450 til 500 þátttakendur, auk fjölda þjálfara, fararstjóra og foreldra. Skjóta má á að við framkvæmd hvers móts vinni sem næst eitthundrað sjálfboðaliðar.
Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, sagði við undirskrift samningsins í kvöld að það skipti fyrirtækið miklu máli að koma að Goðamótunum. "Við leggjum áherslu á að koma að samfélagslegum verkefnum á þeim stöðum þar sem við störfum og Goðamótin eru stærsta einstaka verkefnið sem við tökum þátt í. Það er ljóst að okkar helsta vörumerki, Goði, er oftast nefnt í tengslum við þessi mót. Okkur er það sönn ánægja að framlengja þetta samstarf til næstu þriggja ára," sagði Ingvar.
Sigurjón Magnússon, talsmaður Goðamótanna, segir það skipta Íþróttafélagið Þór gríðarlega miklu máli að eiga þetta farsæla samstarf við Norðlenska um framkvæmd Goðamótanna. "Norðlenska hafði trú á þessari hugmynd í upphafi og síðan hafa mótin vaxið og dafnað. Samstarf okkar við fyrirtækið hefur frá upphafi verið einstaklega gott og ég vil að forráðamenn Norðlenska viti hversu gríðarlega mikils við metum þetta samstarf. Ég fagna þessum nýja samningi og vona að við eigum samstarf við Norðlenska um Goðamótin um ókomna tíð."
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 18:52
Magni fékk 10 þúsundasta ísinn!
Ferð í Brynju er fastur liður hjá hverjum keppanda á Goðamótinu nú sem fyrr, eins og áður hefur komið fram. Heimsókn strákanna í Breiðabliki um miðjan dag var hins vegar ekki venjuleg - þá var nefnilega afgreiddur 10 þúsundasti ísínn á Goðamótunum til þessa en þetta er sjötta árið sem mótin fara fram.
Strákurinn sem fékk ís númer 10.000 heitir Magni Kristinsson og var hann leystur út með gjöfum í tilefni dagsins. Í fyrsta lagi gáfu Fríður og Júlli í Brynju honum Brynju-húfu og Brynju-bol sem og gjafabréf - þannig að hann getur gefið fjölskyldunni bragðaref í Brynju næst þegar þau koma norður. Síðast en ekki síst tilkynnti Reynir Eiríksson úr mótsstjórn Goðamótsins að fjölskyldu Magna yrði send glæsileg karfa með kjöti frá Norðlenska innan tíðar.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 12:45
450 keppendur
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 12:43
Allt tilbúið í Brynju!
Öllum leikmönnum, þjálfurum og fararstjórum Goðamótsins er boðið upp á Brynjuís eins og venjulega. Ekið er í rútum frá Hamri, félagsheimili Þórs við hlið Bogans, inn í Brynju og spennan er að magnast fyrir heimsóknina þangað. Allt er orðið klárt í Brynju og starfsfólkið þar afgreiðir fljótlega heimsins besta ís í bílförmum ofan í Goðamótsleikmennina, alla sem einn. Fyrsta rútan fer af stað fljótlega, kl. 13.00 - og
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 12:38
Neisti með í fyrsta skipti
Neisti frá Djúpavogi tekur nú þátt í Goðamótinu í fyrsta skipti. Hingað til Akureyrar eru mættir 10 strákar fyrir hönd Neista og það eru foreldrar með þeim öllum. Flottur hópur!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 12:33
"Rosalega gaman"
Mikið fjör hefur verið í Boganum og í Hamri frá því snemma í morgun. Byrjað var að spila klukkan 8 og síðustu leikir í kvöld hefjast kl. 19.20. Síðan verður kvöldvakan auðvitað eins og venjulega á Goðamóti.
"Þetta er búið að vera rosalega gaman," sagði einn af knattspyrnumönnunum ungu við tíðindamann heimasíðunnar í Boganum. "Við erum búnir að vinna alla leikina okkar og eigum bara einn eftir í dag," sagði hann og ljómaði.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 08:32
Úrslitin í gær!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 23:57
Úrslitin koma á morgun
Tæknin hefur aðeins verið að stríða okkur í dag. Úrslit leikja sem slegin voru inn í kerfið í dag virðast ekki sjást, en við reynum að kippa því í liðinn strax í fyrramálið. Og þá verður ljósmyndarinn á ferðinni með myndavélina og stefnt er að því að annað kvöld verði komnar ljósmyndir úr leikjum ALLRA LIÐA á mótinu inn í myndaalbúm.
Hann er íbygginn á myndinni, markvörður Breiðabliks í E-liðsleik gegn Magna. Hans menn voru í sókn og stráksi fylgdist vel með því sem fram fór hinum megin á vellinum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 17:44
Nokkrar myndir komnar
Fyrsta myndaalbúm mótsins er komið á sinn stað hægra megin á síðunni. Þegar eru komnar nokkrar myndir þar inn, úr fyrstu leikjum dagsins. Á þessari mynd eru strákar úr Hugin á Seyðisfirði þegar þeir komu að Hamri fyrr í dag. Níu strákar æfa með Hugin en tveir heltust úr lestinni á síðustu stundu þannig að sjö mættu á mótið og með þeim eru sjö fararstjórar.
Velkomnir Huginsmenn og allir aðrir þátttakendur í Goðamótinu að þessu sinni!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 15:13
Dansinn dunar!
Þriðja og síðasta Goðamót ársins er hafið í Boganum. Flautað var til fjögurra fyrstu leikjanna núna klukkan þrjú.
Það eru strákar í 6. flokki sem keppa um helgina og fyrstu leikirnir eru þessir, allir hjá E-liðum: Magni - Breiðablik, Þór 1 - Tindastóll, Fjarðarbyggð 2 - KA og Þór 2 - Grótta.
Fylgst verður með mótinu hér á heimasíðunni alla helgina, í máli og ekki síst myndum, eins og venjulega. Mótið verður örugglega bráðskemmtilegt eins og Goðamótin hafa ávallt verið.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2008 | 15:52
Goðamót Þórs 6. flokkur 2008
Það er ein breyting, Magni færist úr A í B og Þór 2 kemur ur B í A.
Allar upplýsingar um leiki, riðla og dagskrá eru hér !
Íþróttir | Breytt 12.3.2008 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2008 | 11:47
6. flokkur karla leikir og úrslit 2008
Íþróttir | Breytt 23.1.2009 kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2008 | 23:25
Filman búin!
Ljósmyndari Goðamótsins hefur lokið störfum í dag. Komnar eru 158 myndir í sunnudagsalbúmið, þar á meðal af öllum liðunum sem fengu verðlaun í dag auk mynda úr öllum úrslitaleikjunum.
Laugardagsmyndirnar eru 114 og 119 myndir eru í albúminu frá því á föstudaginn. Goðamótsmyndirnar að þessu sinni eru því alls 391. Vonandi sjá allir eitthvað við sitt hæfi. Það má eiginlega segja að filman sé búin; það er að vísu úrelt orðalag og fullorðnir lesendur síðunnar verða líklega að útskýra fyrir strákunum hvað orðið filma þýðir!
Takk aftur fyrir frábært mót. Næsta Goðamót verður eftir hálfan mánuð þegar strákar í 6. flokki mæta til leiks í Bogann.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- September 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Heimasíður tengdar Goðamótum
- Goðamót TV á Youtube Samansafn myndbanda á vegum Goðamótanna
- Eldri vefur Goðamóta
- Íþróttafélagið Þór
- Landsbankamót Þórs
- Myndir frá Goðamótum 2005 og 2006