Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Amma Goðamótanna

Guðrún Ingimarsdóttir ,,Amma Goðamótanna"

Það er að mörgu að hyggja og í mörg horn að líta þegar kemur að framkvæmd á stórum knattspyrnumótum eins og Goðamótin eru. Á þessu móti eru t.a.m. 524 þátttakendur auk farastjóra, þjálfara og fylgdarliðs þátttakendur svo að í mörg horn er að líta. Stór hópur mann hefur komið að mótunum alveg frá upphafi og ganga í sömu verkin aftur og aftur.. Það er lykillinn að því að framkvæmd mótanna ganga jafn vel og raunin er á. Þetta er fólkið á bak við tjöldin.

Guðrún Ingimarsdóttir er ein af fjölmörgum sem er í þessum hópi og er jafnan kölluð ,,Amma Goðamótanna”. Guðrún hefur undanfarin ár séð um að sjá starfsfólki mótanna sem skiptir tugum um bakkelsi allt frá kleinum upp í glæsilegustu tertur sem eru gjarnan bornar fram á farastjórafundum.

Til gamans tölulegar staðreyndir um stærð Goðamótanna til leiks á Goðamót ársins mættu 1750 keppendur og með þjálfurum og farastjórum eru fjöldinn 2050 manns, já Goðamótin eru engin smá smíði.


úrslit leikja föstudag

Öllúrslit komin inn.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

,,Ég er sko komin til að vinna frænda eins og í fyrra"

Magni B

Strákarnir úr Magna voru að koma úr erfiðum en bráðskemmtilegum leik gegn Val þar sem sigurinn gat lent hvoru megin sem var. Þeir voru búnir að spila tvo leiki og það sem af er væri búið að vera rosalega gaman. ,,Við höfum oft komið á Goðamót og það er rosalega gaman, einn í hópnum sagði að hann hefði komið mjög oft og því hokin af reynslu.

 

Þróttur Vogum

Strákarnir úr Þrótti Vogum voru að hita upp þegar okkur bar að garði. Þeir voru að fara í sinn fyrsta leik á mótinu og voru að fara mæta Val og þeir voru alveg staðráðnir í að vinna Val. En ef þið vinnið ekki Val hvað þá ,, þá bara reynum við að hafa gaman af þessu” og einn úr hópnum sagði ,, ég er sko komin til að vinna frænda minn … eins og ég gerði í fyrra”. Flestir þeirra höfðu áður komið á Goðamót og það hafi verið rosalega gaman.  

Já það er greinilega gaman á Goðamóti


Úrslit leikja Föstudag

Úrslit leikja föstudag kl 19.00
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Líf og fjör á Goðamóti

KS

Það er svo sannarlega líf og fjör á 25. Goðamóti Þórs jafn innanvallar sem utan. Sumir eru að koma í fyrsta sinn en aðrir hafa komið hér áður.

Það var létt yfir strákunum úr KS frá Siglufirði þegar við tókum þá tali. Strákarnir sögðu fyrst að þeir væru komnir hingað til þess að vinna og ekkert annað. ,,Við ætlum sko heim með gullið. En ef ekki þá ætlum við að hafa gaman af þessu.

 

Kjalnesingar voru gómaðir þegar þeir voru nýkomnir úr æsispennandi leik gegn Breiðabliki þegar við náðum tali af þeim. Hluti þeirra hafði komið áður á Goðamót aðrir voru hér í fyrsta sinn. Þeirra markmið var fyrst og síðast að vera með og hafa gaman af þessu. Einhverjir sögðust aldrei hafa komið til Akureyrar áður og fannst afar spennandi að vera komnir hingað.

Samherjar

 

Samherjar úr Eyjafjarðarsveit voru að fara spila við Mývetninga og mikil tilhlökkun í hópnum hjá þeim. Þeir sögðust allir þekkja vel til Goðamótanna þótt þeir hafi ekki allir keppt á mótinu. Jú við ætlum sko að skemmta okkur og hafa gaman. En vitið þið hvaðan Mývetningar eru ,,Já já auðvitað vitum við það þeir eru frá……………………………. Já einhvers staðar stutt frá”. Ætla allir að fara í ísferðina á morgun? Jáááááááá og þeir höfðu það alveg á hreinu hvað ísinn heitir ,,Brynjuísinn er sá besti í heimi…

Mývetningur

 

Mývetningar voru að gera sig klára fyrir leikinn gegn Samherjum og þegar þeir voru spurðir hvort þeir vissu hvaðan Samherjar kæmu stóð ekki á svörum hjá þeim ,,Eyjafjarðarsveit”. Allir höfðu þeir komið áður á Goðamót og þeir sögðu að þeir ætluð sko að hafa gaman af þessu og að vinna væri ekki aðalatriðið, heldur að hafa gaman af þessu. Þegar þeir voru spurðir útí hvort þeir ætluðu að fara í ísferðina á morgun stóð ekki á svörum. Jájá auðvitað Brynjuísinn er æðislegur og við sleppum því sko ekki, sögðu þeir að lokum og héldu svo áfram að hita upp fyrir leikinn gegn Samherjum.  


Úrslit leikja á föstudegi.

Nú eru að koma inn úrslit úr  leikjum sem voru leiknir kl 20.20 á 25. Goðamóti Þórs.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Heimsins besta kjötsúpa?

Matur hefur verið til sölu við vægu verði í Hamri meðan á Goðamótum vetrarins stendur og svo verður áfram um helgina, vegna góðra viðbragða fram að þessu.

Á föstudaginn hefja keppni strákar í 6. flokki og leika listir sínar í Boganum þar til á sunnudag. Þeir eru hvaðanæva af landinu sem fyrr.

Foreldrar og aðrir aðstandendur krakkanna hafa gripið tækifærið fegins hendi, að geta keypt sér að borða í Hamri en þar er boðið upp á hina rómuðu Þórskjötsúpu, sem upphaflega sló í gegn á Landsmóti Ungmennafélags Íslands síðastliðið sumar. Frjálsíþróttamenn fullyrtu þá sumir hverjir að það væri besta kjötsúpa í heimi! Auk þess er til sölu pasta og brauð. Þá er bakkelsi á boðstólum, t.d. vöfflur, kaffi og kakó bæði á laugardag og sunnudag.


Goðamót 6. flokks karla 2010

Riðlar, leikjaplan og dagskrá!
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Blikarnir unnu fern gullverðlaun

Sunnudagur 085 

Leikjum er lokið og Breiðablik varð í fyrsta sæti á öllum vígstöðvum.  Úrslitaleikirnir fóru sem hér segir:

 

ABreiðablikValur3-0
BBreiðablikFram2-1
CTindastóllBreiðablik0-3
DBreiðablik 1Fjarðabyggð2-0

 

Á myndinni eru Goðamótsmeistarar Breiðabliks í A-liðakeppninni.

Myndir úr úrslitaleikjunum og af öllum liðunum sem fengu viðurkenningu koma inn á síðuna seinna í dag. Fleiri myndir eru líka væntanlegur úr leikjum gærdagsins - úr leikjum allra liða.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Myndunum fjölgar

B   KA Þór002

Fleiri myndir frá því í gær eru komnar inn í albúmið en þó ekki allar. Smávægilegir tæknilegir erfiðleikar gerðu okkur erfitt fyrir en nú er allt komið í lag og myndirnar streyma inn. Myndir frá því í dag fylgja svo í kjölfarið þegar þar að kemur.

Myndin er úr leik B-liða Þórs og KA í gær.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Stjórn Goðamóta

Goðamót Þórs í fótbolta
Goðamót Þórs í fótbolta

Goðamótin í knattspyrnu veturinn 2012

4.fl.kvenna 3. - 5. feb

5.fl.karla 17. - 19. feb

5.fl og 6.fl.kvenna 2. - 4. mars

6.fl.karla 23. - 25. mars


Upplýsingar!

Netfang:  godamot@tpostur.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband