Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Dansinn dunar!

Þriðja og síðasta Goðamót ársins er hafið í Boganum. Flautað var til fjögurra fyrstu leikjanna núna klukkan þrjú.

Það eru strákar í 6. flokki sem keppa um helgina og fyrstu leikirnir eru þessir, allir hjá E-liðum: Magni - Breiðablik, Þór 1 - Tindastóll, Fjarðarbyggð 2 - KA og Þór 2 - Grótta.

Fylgst verður með mótinu hér á heimasíðunni alla helgina, í máli og ekki síst myndum, eins og venjulega. Mótið verður örugglega bráðskemmtilegt eins og Goðamótin hafa ávallt verið.


Goðamót Þórs 6. flokkur 2008

Það er ein breyting, Magni færist úr A í B og Þór 2 kemur ur B í A. 

Allar upplýsingar um leiki, riðla og dagskrá eru hér !

 


6. flokkur karla leikir og úrslit 2008

Öllum leikjum á Goðamótum Þórs 2008 er lokið!
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Filman búin!

Verðlaunaafhendingin

Ljósmyndari Goðamótsins hefur lokið störfum í dag. Komnar eru 158 myndir í sunnudagsalbúmið, þar á meðal af öllum liðunum sem fengu verðlaun í dag auk mynda úr öllum úrslitaleikjunum.

Laugardagsmyndirnar eru 114 og 119 myndir eru í albúminu frá því á föstudaginn. Goðamótsmyndirnar að þessu sinni eru því alls 391. Vonandi sjá allir eitthvað við sitt hæfi. Það má eiginlega segja að filman sé búin; það er að vísu úrelt orðalag og fullorðnir lesendur síðunnar verða líklega að útskýra fyrir strákunum hvað orðið filma þýðir!

Takk aftur fyrir frábært mót. Næsta Goðamót verður eftir hálfan mánuð þegar strákar í 6. flokki mæta til leiks í Bogann.


Þrefalt afmæli!

Afmæli 

Gróttustrákarnir Arnór Guðjónsson, til hægri, og Axel Ingi Sveinsson, voru í hátíðarskapi í dag. Arnór fagnar 12 ára afmæli sínu og Axel laumaði því að blaðamanni að Ella amma hans ætti líka afmæli.

Og svo kom upp úr dúrnum, þegar Axel hugsaði sig aðeins lengur um, að hann á sjálfur skírnarafmæli í dag!

Til hamingju með daginn strákar, og amma Ella!


KA strákarnir Goðamótsmeistarar

KA meistari

KA-menn unnu úrslitaleik A-liðanna og unnu þar með gullverðlaunin. KA-strákarnir unnu lið Fjarðabyggðar 3:1 í úrslitaleiknum. Austfirðingarnir komust í 1:0, staðan í hálfleik var 1:1 en tvö flott mörk í seinni hálfleiknum tryggðu KA sigurinn.

Þá er mjög vel heppnuðu móti lokið. Leikirnir voru 145 og alls skoruð 734 mörk, 5 að meðaltali.

Ljósmyndir úr úrslitaleikjunum og af öllum liðum sem fengu verðlaun verða komnar inn í sunnudagsalbúmið hér til hægri seinna í dag.

Takk fyrir frábært mót, strákar! Þið stóðuð ykkur allir vel.


KA, Þróttur, Breiðablik og Mývetningur með gull

Fjórum úrslitaleikjum er lokið og þar nældu KA-menn, Þróttarar, Blikar og Mývetningar sér í gull.

Úrslit urðu þessi:

B-lið KA - KS 1:0

C-lið Fjarðarbyggð - Þróttur R 0:1

D-lið Grótta - Breiðablik 0:1

E-lið Mývetningur - Þróttur R 0:0

Framlengja þurfti úrslitaleik D-liðanna. Ekkert var skorað í venjulegan leiktíma, heldur ekki í framlengingu og því þurfti að kasta upp peningi til þess að fá fram úrslit. Mývetningar höfðu heppnina með sér í þetta skipti og fá því gullverðlaunin.


Úrslitaleikirnir hefjast brátt

Það er farið að síga á seinni hluta Goðamótsins. Úrslitaleikirnir hefjast senn; klukkan 13.00 hefjast fjórir og sá síðasti, úrslitaleikur A-liðanna, hefst kl. 13.40. Strax að þeim leik loknum verður verðlaunaafhending og mótinu lýkur með hinni rómuðu Goðagrillveislu fyrir utan Bogann þar sem allir fá pylsu og kók.

Úrslitaleikir B, C, D og E-liða eru um það bil að hefjast sem fyrr segir:

B-lið KA - KS

C-lið Þróttur - Fjarðarbyggð

D-lið Breiðablik 2 - Grótta

E-lið Mývetningur - Þróttur 2

Úrslitaleikur A-liða verður kl. 13.40, þar sem mætast KA og Fjarðarbyggð.


Grótta, KA og Breiðablik í 3. sæti

Úrslitaleikjunum um 3. sæti Goðamótsins er nú lokið.

Leikirnir fóru sem hér segir; feitletruðu liðin sigruðu.

E-lið Grótta - Breiðablik1 4:3

D-lið KA -  Breiðablik1 2:1

C-lið Þór - KA 0:3

B-lið Þór - Breiðablik 1:2

A-lið Þór - Breiðablik 1:4


Allir til fyrirmyndar

Strákarnir á Goðamóti helgarinnar hafa verið til algjörrar fyrirmyndar. Starfsmenn okkar í Glerárskóla, þar sem aðkomuliðin gista og borða bæði morgunverð og kvöldverð, segja að öll liðin hafi verið sérlega kurteis og prúð. Sumir strákanna sungu meira að segja fyrir starfsmenn í eldhúsinu eftir matinn og þökkuðu þannig fyrir sig!

Á myndinni eru Völsungar frá Húsavík á kvöldvökunni í gærkvöldi í Boganum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Stjórn Goðamóta

Goðamót Þórs í fótbolta
Goðamót Þórs í fótbolta

Goðamótin í knattspyrnu veturinn 2012

4.fl.kvenna 3. - 5. feb

5.fl.karla 17. - 19. feb

5.fl og 6.fl.kvenna 2. - 4. mars

6.fl.karla 23. - 25. mars


Upplýsingar!

Netfang:  godamot@tpostur.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband