16.2.2012 | 12:16
Goðamót í 5.flokki á morgun.
Búið er að klára uppsetningu handbókarinnar og þar eru allar helstu upplýsingar tengdar mótinu um helgina. Hægt er að nálgast þetta í pdf skjölum sem fylgja þessari frétt. Fyrstu leikir hefjast kl.15:30 á föstudag og mótinu ætti að vera lokið um kl.15:00 á sunnudag.
Eins og venjulega verður gist í Glerárskóla og vill mótsstjórn leggja áherslu á að móttaka liða hefst kl. 15.00 á föstudag í skólanum. Við biðjum liðin um að virða þá tímasetningu þannig að starfsfólk skólans fái tóm til að ganga frá að lokinni vinnuviku þar. Ef lið eru komin fyrr til Akureyrar eru þau velkomin í Hamar, félagsheimili Þórs, þar sem hægt er að setjast niður og slaka á þar til hleypt verður inn í skólann.
Goðamótið býður upp á ýmsa afslætti fyrir keppendur í allskonar afþreyingu á milli leikja eða á kvöldin.
Í Sambíóunum geta keppendur fengið bíómiða, popp og gos á 1.100kr.
Skautahöllin býður mótsgestum á skauta með skautaleigu á 500kr
Í Paradísarlandi á Glerártorgi er leiktækjasalur fyrir yngri kynslóðina 500kr.
Kaffi Jónsson býður keppendum að taka leik í keilu á 720kr.
Lasertag Akureyri býður gestum mótsins leikinn á 750kr.
kveðja, mótsstjórn
Eldri færslur
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- September 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Heimasíður tengdar Goðamótum
- Goðamót TV á Youtube Samansafn myndbanda á vegum Goðamótanna
- Eldri vefur Goðamóta
- Íþróttafélagið Þór
- Landsbankamót Þórs
- Myndir frá Goðamótum 2005 og 2006
Athugasemdir
Ágætu mótshaldarar, athugið að fara rétt með nöfn félaganna í mótinu - Fjarðabyggð en ekki Fjarðarbyggð.
Kveðja að austan.
Jón Bragi (IP-tala skráð) 16.2.2012 kl. 21:06
hálfvitar
viktor logi (IP-tala skráð) 16.2.2012 kl. 21:46
Biðjumst afsökunar á þessari innsláttarvillu. Verður leiðrétt.
Mótsnefnd (IP-tala skráð) 19.2.2012 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.